Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Borðað úti Prenta
Bakkafréttir
miðvikudagur, 14 júlí 2010 14:00

Jæja, nú erum við fáliðuð á Bakka, meirihluti barna og starfsmanna er í sumarfríi og elsti árgangurinn að kveðja okkur.

Við höldum þó gleði okkar og njótum veðurblíðunnar. Í dag brugðum við út af vananum og borðuðum morgunmatinn og hádegisverðinn úti í garði. Þetta var mjög spennandi og skemmtilegt.
Lesa meira...
 
Fjörulallanámskeið 02.júlí 2010 Prenta
Fjörulallar
fimmtudagur, 08 júlí 2010 00:00

Á föstudaginn komu til okkar elstu börnin frá Engjaborg og fóru með okkur í fjöruna.

Við byrjuðum á því að koma saman í sal og spjalla, við ræddum veður og klæðnað og eins hvað við gætum séð í fjörunni okkar.
Lesa meira...
 
Heimsókn frá leikskólanum Furugrund Prenta
Fjörulallar
þriðjudagur, 29 júní 2010 01:00

Við fengum heimsókn frá leikskólanum Furugrund í Kópavogi. Þau fóru með 2005 árganginum í fjöruferð og kíktu svo inn til okkar og borðuðu nestið sitt. Þau komu færandi hendi og gáfu okkur fuglagjöf. Við vorum mjög heppin með veður og sáum 5 seli, mjög mikið af fuglum og kíktum á krummahreiðrið á leiðinni heim úr fjörunni. Við ætlum síðan að heimsækja þau næsta vor og fara með þeim í skógarferð í Fossvogsdalnum.

Lesa meira...
 
Sumargleði Foreldrafélags Bakka Prenta
Frá foreldrafélaginu
þriðjudagur, 29 júní 2010 00:15

Í beinu framhaldi af sumargleði leikskólans var sumargleði Foreldrafélagsins Bakka. Sólin lék þá á alls oddi og nutu bæði börn og foreldrar veðurblíðunnar við spjall og leiki.

Mjög spennandi gestir kíktu í heimsókn, Solla stirða og Íþróttaálfurinn. Þau vöktu mikla gleði og kátínu, enda gáfu þeir sér góðan tíma í leik og sprell með börnunum.

Lesa meira...
 
Sumarhátíð á Bakka Prenta
Bakkafréttir
mánudagur, 28 júní 2010 23:51

Sumarhátíðin á Bakka tókst mjög vel. Fyrir hádegi vorum við með ýmislegt í boði í útiveru sem er ekki alla jafna eins og t.d. trampolín og húllahringi. Við borðuðum pylsur úti í hádeginu og fengum svo hoppukastala eftir hádegi sem var toppurinn á fjörinu.

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 72

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir