|
Fjörulallar
|
|
fimmtudagur, 08 júlí 2010 00:00 |
|
Á föstudaginn komu til okkar elstu börnin frá Engjaborg og fóru með okkur í fjöruna.
Við byrjuðum á því að koma saman í sal og spjalla, við ræddum veður og klæðnað og eins hvað við gætum séð í fjörunni okkar. |
|
Lesa meira...
|
|
Fjörulallar
|
|
þriðjudagur, 29 júní 2010 01:00 |
|
Við fengum heimsókn frá leikskólanum Furugrund í Kópavogi. Þau fóru með 2005 árganginum í fjöruferð og kíktu svo inn til okkar og borðuðu nestið sitt. Þau komu færandi hendi og gáfu okkur fuglagjöf. Við vorum mjög heppin með veður og sáum 5 seli, mjög mikið af fuglum og kíktum á krummahreiðrið á leiðinni heim úr fjörunni. Við ætlum síðan að heimsækja þau næsta vor og fara með þeim í skógarferð í Fossvogsdalnum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Frá foreldrafélaginu
|
|
þriðjudagur, 29 júní 2010 00:15 |
|
Í beinu framhaldi af sumargleði leikskólans var sumargleði Foreldrafélagsins Bakka. Sólin lék þá á alls oddi og nutu bæði börn og foreldrar veðurblíðunnar við spjall og leiki.
Mjög spennandi gestir kíktu í heimsókn, Solla stirða og Íþróttaálfurinn. Þau vöktu mikla gleði og kátínu, enda gáfu þeir sér góðan tíma í leik og sprell með börnunum. |
|
Lesa meira...
|
|
Bakkafréttir
|
|
mánudagur, 28 júní 2010 23:51 |
|
Sumarhátíðin á Bakka tókst mjög vel. Fyrir hádegi vorum við með ýmislegt í boði í útiveru sem er ekki alla jafna eins og t.d. trampolín og húllahringi. Við borðuðum pylsur úti í hádeginu og fengum svo hoppukastala eftir hádegi sem var toppurinn á fjörinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Frá foreldrafélaginu
|
|
mánudagur, 28 júní 2010 21:53 |
|
Sunnudaginn 30. maí sl. var haldið í árlega sveitaferð Foreldrafélags Bakka. Áfangastaðurinn var Grjóteyri í Kjós þar sem börnin á Bakka og fjölskyldur þeirra hittust klukkan 11. Á Grjóteyri vöktu dýrin mikla lukku en þar voru m.a. hestar, kindur, kýr, svín, geitur, litlir kettlingar, hvolpar og ungar.
|
|
Lesa meira...
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 73 |