|
Bakkafréttir
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 22:00 |
|
Í morgun fengum við góða gesti; herra Karl Sigurbjörnsson biskup kom í heimsókn ásamt fríðu föruneyti Grafarvogspresta og djákna.
Þau fengu kynningu á leikskólanum og þeim verkum sem þar eru unnin. Börnin sungu og auðvitað tók Gunni okkar (djákni og æskulýðsfulltrúi) upp gítarinn og stjórnaði af kunnri snilld söngnum. |
|
Lesa meira...
|
|
Bakkafréttir
|
|
þriðjudagur, 15 júní 2010 12:48 |
|
Börnin eru að verða sólbrún og sæl. Þó svo núna sé aðeins farið að rigna þá látum við það ekki á okkur fá, enda bráðnauðsynlegt fyrir allt lifandi að fá smá vætu.
Nú er frjálsi leikurinn í hávegum hafður og allir njóta þess. Elsti árgangurinn fer eins og vanalega í ferðir út um borg og bý, en þó ekki eins víða og hefur verið undanfarin ár, þar sem strætóferðirnar eru ekki eins aðlaðandi og áður var. |
|
Lesa meira...
|
|
EBV
|
|
föstudagur, 11 júní 2010 10:14 |
|
Þriðjudaginn 8. júní fóru elstu börnin í heimsókn í Flataskóla í Garðabæ, en þau eru einnig þátttakendur í Comuníusarverkefninu Vængjaðir vinir ásamt okkur.
Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og við fengum alveg frábærar móttökur. |
|
Lesa meira...
|
|
Comenius
|
|
fimmtudagur, 03 júní 2010 22:51 |
|
Þann 28. maí héldu þær Rakel, Edda og Ólafía af stað til Kanaríeyja. Þessi ferð er önnur ferðin sem farin er í tengslum við Cominíusarverkefnið okkar Vængjaðir vinir.
Millilent var í Danmörku og þaðan haldið til Kanaríeyja. Það var mjög vel tekið á móti okkur á flugvellinum af kennurum frá samstarfsskóla okkar á Kanarí. Þau keyrðu okkur á hótelið þar sem við gistum og var þá farið í að taka upp úr töskum og gera klárt fyrir næsta dag. |
|
Lesa meira...
|
|
Frá Lundey
|
|
fimmtudagur, 03 júní 2010 07:00 |
|
Það er ýmislegt bardúsað inn á deild. Sum börnin voru að skoða teppisbúta sem við fengum gefins, nokkur voru að klippa og enn önnur voru í Lego-kubbum.
|
|
Lesa meira...
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 6 af 72 |