Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Íslensku húsdýrin - Kisan Prenta
Fyrstu kynnin við dýrin
miðvikudagur, 07 janúar 2009 13:41
Kisur Fyrir jólin unnum við dýraverkefnið Fyrstu kynnin við dýrin. Við höfum ákveðið að taka íslensku húsdýrin fyrir og byrjuðum á kisunni. Við vitum núna að mamman kallast læða, pabbinn fress og unginn kettlingur. Það sem við lærðum líka um ketti er að þeir sjá vel í myrkri, hafa sterkt lyktaskyn, merkja sér svæði með þvagi og eru með veiðihár.
Lesa meira...
 
Gullkorn frá Þerney Prenta
Frá Þerney
miðvikudagur, 17 desember 2008 23:59
Gullkorn Gullkorn frá börnunum sem lífgar upp á skammdegið.

Drengur 5 ára: Ég spurði pabba hvort ég mætti fá H2O og hann spurði hvað það væri. Pabbi veit allt en hann vissi það ekki. (Börnin höfðu verið að læra um vatn)

Lesa meira...
 
Kynning frá Grikklandi Prenta
Löndin okkar
miðvikudagur, 17 desember 2008 23:05
Kynningarveggspjald Grísku vinirnir okkar sendu kynningu um Grikkland sem var mjög glæsileg. Við erum líka búin að senda þeim kynninguna okkar um Ísland.
Þessar kynningar verða síðar kynntar á opnu húsi leikskólans. Við fengum líka myndband af grísku krökkunum þar sem þau sögðu kalimera sem þýðir góðan dag og gia sas sem þýðir halló.
Lesa meira...
 
Jólakort til Grikklands Prenta
Löndin okkar
mánudagur, 15 desember 2008 14:21
Elstu börnin gerðu jólakort til að senda til vina sinna í Grikklandi. Þau teiknuðu fallegar myndir og skrifuðu sjálf innaní kortin.
Lesa meira...
 
Dagatal 2009 Prenta
Með augum barna
föstudagur, 12 desember 2008 01:26
Dagatal Við höfuð látið prenta þetta skemmtilega dagatal með myndum sem börn fædd 2003 og 2004 tóku í fjörunni og köllum við það „Nærmyndir af fjörunni.“
Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 Næsta > Endir >>

Síða 70 af 72

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir