Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hvatningarverðlaun Prenta
Bakkafréttir
miðvikudagur, 26 maí 2010 22:39

Hvatningarverðlaun Leikskólaráðs voru afhent í fjórða sinn við formlega athöfn í Höfða í dag.

Borgarstjórinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður Leikskólaráðs og Hildur Skarphéðinsdóttir skrifstofustjóri Leikskólaskrifstofu héldu smá tölu og afhentu verðlaunin.

Okkar frábæri leikskólastjóri Ingibjörg E. Jónsdóttir hlaut hvatningarverðlaun fyrir leiðtogahæfileika í gróskumiklu fagstarfi.

Lesa meira...
 
Grein í veftímaritinu Netlu Prenta
Fjörulallar
miðvikudagur, 26 maí 2010 18:00

Hér má lesa um verkefnið okkar Fjörulallar, það erum við! Sem hefur hlotið verðskuldaða athygli.

 
Sól og sumar Prenta
Frá Lundey
miðvikudagur, 26 maí 2010 12:35

Loksins, loksins virðist sumarið komið. Nú þarf ekki lengur að klæða sig í kuldagalla, húfu, vettlinga o.s.frv. Nú eru það bara léttir skór og sólarvörn. Jibbííí.

Lesa meira...
 
Fjöruferð og fjörulallar afhjúpaðir Prenta
Fjörulallar
föstudagur, 21 maí 2010 15:48

Það voru yngstu fjörulallarnir sem fóru í fjöruferð í þessari viku þar sem þeirra ferð féll niður síðast vegna frídags.

Það var ákveðið að fara með fötur og skóflur því við ætluðum í sandfjöruna. Að sjálfsögðu var ruslafatan tekin með líka því börnin gleyma því ekki að við ætlum að hafa fjöruna okkar snyrtilega. Það var mikið að gera og mikil samvinna í gangi hjá börnunum. Þetta var síðasta skipulagða ferðin fyrir sumarfrí en að sjálfsögðu getur verið að hóparnir skreppi í fjöruna með sínum hópstjóra.

Lesa meira...
 
Sólarsaga Prenta
Bakkafréttir
föstudagur, 21 maí 2010 10:50

Brúðuleiksýningin Sólarsaga var sýnd í morgun í salnum. Þessi sýning var í boði skemmtisjóðs barnanna. Þetta er falleg saga sem er fléttuð úr þjóðsögum af sólinni frá ýmsum löndum. Börnin tóku líka virkan þátt í sögunni.

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 72

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir