Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Umferðarskólinn Prenta
Bakkafréttir
mánudagur, 17 maí 2010 16:23

Umferðarskólinn kom í síðustu viku og var með fræðslu fyrir elstu börnin á leikskólanum.

Það var farið í umferðarreglurnar og notkun bílstóla og sessa. Eins var sýnt hvernig við eigum að stilla hjálmana okkar þannig að þeir séu öruggir. 

Lesa meira...
 
Gönguferð og ljósmyndun Prenta
EBV
laugardagur, 15 maí 2010 00:00

Elsti árgangurinn fór í gönguferð og var hugmyndin að taka myndir fyrir ljósmyndaverkefnið Með augum barna. Nú var ætlunin að börnin tækju myndir af því sem ekki á heima í umhverfinu og má því segja að þessi ljósmyndun tengist einnig umhverfisverndinni. Þau voru mjög áhugasöm að finna það sem á ekki heima í umhverfinu og tóku myndir af því. Auðvitað tóku þau svo ruslið og settu það í næstu ruslafötu. Myndirnar munu birtas á vefnum í næstu viku.

Lesa meira...
 
Nonna sögur Prenta
Bakkafréttir
föstudagur, 14 maí 2010 15:54

Við vorum svo heppin að fá hana Helgu Jóhönnu Úlfarsdóttur sem er uppeldis- og menntunarfræðingur til að lesa upp úr bókunum sínum fyrir elsta árganginn. Bækurnar eru skrifaðar með það í huga að efla tilfinningaþroska barna og auka félagslega hæfni. Hér má sjá meira um Nonna sögur.

Lesa meira...
 
Hringrás Prenta
Umhverfisvernd
föstudagur, 14 maí 2010 15:41

Við hlustuðum á söguna Gulætur eru góðar af vefnum heimurinn.is. Í sögunni var farið yfir það hvernig maður ætti að flokka rusl, moltugerð og hvað lífrænir afgangar eru. Börnunum fannst merkilegt að við værum að nota sama efnið aftur og aftur eins og hringrás.

 
Myndaalbúm Prenta
Bakkafréttir
miðvikudagur, 12 maí 2010 14:30

Vorum að uppfæra myndaalbúmið okkar.
Ef lykilorðið hefur glatast hafið samband við Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. .

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 72

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir