Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hópaðlögun Prenta
Bakkafréttir
föstudagur, 13 ágúst 2010 14:16

Í þessari viku hefur staðið yfir hópaðlögun á nýjum börnum.

Það eru 22 börn sem kveðja okkur þetta haustið og fara í skóla.

Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og bjóðum nýju börnin velkomin til okkar á Bakka.
Lesa meira...
 
Spennandi verkefni Prenta
Bakkafréttir
fimmtudagur, 12 ágúst 2010 10:17

Í lok júní 2010 var tekin sú ákvörðun að sameina leikskólanna Bakka og Berg. Annar skólinn er í Staðahverfi í Grafarvogi en hinn við Kléberg á Kjalarnesi. Við sameininguna er stefnan að úr verði einn leikskóli með tvær starfsstöðvar.

Lesa meira...
 
Nýjar kartöflur Prenta
Bakkafréttir
mánudagur, 09 ágúst 2010 15:26

Við tókum upp kartöflur í dag og fengum fína uppskeru eins og sjá má á myndinni. Þær voru rosalega góðar með fisknum í hádeginu.

 
Yngstu fjörulallarnir Prenta
Fjörulallar
þriðjudagur, 03 ágúst 2010 10:53

Fyrir lokun fórum við í  prufuferð með 2007 börnin í fjöruna, það var nú ekki allur hópurinn því sumir voru farnir í frí.

Það gekk mjög vel og voru börnin spennt yfir ferðinni. Við fórum í vinabandi og allir duglegir að ganga í fjöruna. Það var svolítið erfitt til að byrja með að fóta sig í grjótinu en það kom fljótt, þá var farið á fullt að skoða sig um.

Lesa meira...
 
Sumarlokun Prenta
Bakkafréttir
föstudagur, 16 júlí 2010 00:00

Þá er komið að sumarlokuninni á Bakka. Nú verða allir í sumarfríi næstkomandi 2 vikur. Leikskólinn opnar aftur þriðjudaginn 3.ágúst og þá munu börn og starfsmenn fara að streyma inn úr fríi smátt og smátt út ágúst. Frá og með 10.ágúst fara ný Bakkabörn að bætast í hópinn.

Njótið þess vel að vera í fríi í veðurblíðunni og síðan mæta allir hressir og kátir í ágúst.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 72

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir