Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólastarf


Leikskólastarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar - Leikskólastarf

Börn á leikskólaaldri eru fljót að detta inn í leik við hvaða aðstæður sem eru. Þau geta fundið leik í öllu, allstaðar og er það frábær eiginleiki sem vert er að efla. Í leik vinna börn úr reynslu sinni, prófa getu sína og gera tilraunir. Í leik getur allt gerst, hlutir lifna við, veruleikinn breytist og börn og leikfélagar fá ný hlutverk. Þar sem tvö eða fleiri börn eru að leik, fá þau að prófa að stjórna og vera stjórnað á jafnræðisgrundvelli.
Í leik læra þau mikilvægi samvinnunar.

Leikurinn er námsleið barnsins og er því rauði þráðurinn í öllu skipulögðu starfi. Í raun erum við að skapa ákveðnar aðstæður til að auka við reynslu og þekkingu barnsins. Þannig fá þau að gera tilraunir, skoða og rannsaka margskonar efnivið i gegnum skipulagt starf.

Helstu áherslur í starfi:
Einstaklingsmiðað nám, málauðugt umhverfi og náttúran þar sem fjaran skipar stóran sess. Við teljum að námssviðin séu okkar sterku hliðar og erum með verkefnastjóra í myndsköpun, hreyfingu, tónlist, fjöruverkefni og elstu barna verkefnum.

Leiðarljósin okkar á Bakka

leikstarf01 Sjálfstæði


  • Við gerum sjálf.
  • Við höfum skoðanir.
  • Við tökum ákvarðanir.

     
leikstarf02 Virðing
  • Við komum fram við aðra eins og við viljum að sé komið fram við okkur.
  • Við sýnum tillitssemi.
  • Við göngum vel um umhverfi okkar
leikstarf03 Sammvinna

  • Við vinnum saman.
  • Við hjálpumst að
  • Við erum vinir.

 


Viðburðir

13.09.'10
Umhverfisdagur
23.09.'10
Þjóðleikhúsið 2005 árg.
27.09.'10
Starfsdagur
29.09.'10
Foredrafundur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir