Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað
Vistunartími barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar
Leikskólinn opnar kl.7.30 á morgnanna og lokar kl. 17.30 innan þess tíma velja foreldrar vistunartíma fyrir barn sitt. Í boði er frá 4ra tíma vistun upp í 9 tíma en festa þarf ákveðna viðveru.
Lesa meira...
 
Fataboxið Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar

Þar sem við búum í Reykjavík þá þekkjum við hvað vegalengdir geta verið langar. Bakki er nánast staðsettur í sveit í borg og margir foreldrar vinna niðri í bæ.

Lesa meira...
 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar
Þegar barn veikist er hringt í foreldri þess og það beðið um að sækja barnið. Eftir veikindi er í lagi að barnið sé inni í tvo daga, ef foreldri óskar eftir því. Við höldum börnum ekki inni til að forða þeim frá veikindum, en bjóðum foreldrum sem óska eftir því, að barnið fari síðast út og fyrst inn. Foreldrar eru beðnir um að tilkynna forföll barna til leikskólans.
 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar
Þegar barn á afmæli sjáum við um að halda upp á það. Afmælisbarnið fær kórónu, því næst er flaggað og haldin veisla inni á viðkomandi deild með söng og glens. Barnið fær mynd af sér með kórónuna og í matartímum fær það að velja sér diskamottu. Athugið að ekki eru sérstakar veitingar í tilefni af afmælinu.
 
Lyfjagjöf á leikskólatíma Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar
Lyfjagjafir eru ekki heimilar í leikskólanum, nema um langveik börn sé að ræða. Rökin eru þau að oft vilja þessar lyfjagjafir gleymast í erli dagsins, nú eða að barnið fær jafnvel tvöfaldan skammt. Trúnaðarlæknirinn hefur einnig bent á, að þó svo að barn sé í leikskóla allan daginn, eigi að vera hægt að hafa lyfjagjafirnar þannig að þær séu gefnar áður en barn mætir í leikskólann og síðan strax og komið er heim.
 
Slys á börnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar
Ef slys verður :

Þá er hringt í foreldri og sagt frá hvað gerðist. Ef foreldri fer með barnið á heilsugæslu eða slysavarðstofu greiðir foreldrið fyrir þjónustuna og lætur síðan leikskólastjóra fá kvittunina ásamt upplýsingum um hvar á að leggja inn endurgreiðslu.

 
Sumarfrí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar

Börnin verða að taka sumarfrí 4 vikur samfleytt yfir sumarið.
Á vef Leikskólasviðs Reykjavíkur eru almennar upplýsingar um sumarfrí barna.

 


Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir