| Fjörulallanámskeið 02.júlí 2010 |
|
|
|
| Fjörulallar | |||||||
| fimmtudagur, 08 júlí 2010 00:00 | |||||||
|
Á föstudaginn komu til okkar elstu börnin frá Engjaborg og fóru með okkur í fjöruna.
Við byrjuðum á því að koma saman í sal og spjalla, við ræddum veður og klæðnað og eins hvað við gætum séð í fjörunni okkar.
Það var mikið flóð í fjörunni okkar og því ekki eins mikið að skoða. Það var samt fullt af skeljum það voru kúfskeljar, hjartaskeljar, kræklingar og kuðungar. Eins fundu börnin nokkra litla bogkrabba en þeir voru ekki lifandi.
Börnin voru mjög dugleg að skoða og tína í fjörunni. Við fengum okkur nesti og ræddum um heitin á því sem við vorum búin að finna.
Síðan fórum við í margfætluleikinn og börnin á Engjaborg sungu fyrir okkur lag sem heitir gull og perlur og er mjög fallegt vinalag.
Síðan var komið að kveðjustund en þessi duglegu börn ætluðu að ganga til baka.
Við þökkum alveg kærlega fyrir heimsóknina það var mjög gaman að hitta ykkur öll. Eddu þótti alveg sérstaklega gaman að hitta þessi börn því að hún var að passa þau sum þegar hún var að vinna á Engjaborginni. Þá voru þau ekki alveg svona stór og dugleg.
|
| 13.09.'10 Umhverfisdagur |
| 23.09.'10 Þjóðleikhúsið 2005 árg. |
| 27.09.'10 Starfsdagur |
| 29.09.'10 Foredrafundur |