Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn Bakki Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Upplýsingar - Leikskólinn
Leikskólinn Bakki er að Bakkastöðum 77, innst í Grafarvoginum. Hann var formlega opnaður 2. desember 2003. Í skólanum dvelja að meðaltali 69 börn samtímis á aldrinum eins - sex ára. Börnin skiptast á þrjár deildar eftir aldri. Yngstu börnin eru á Lundeyjarstofu en eldri börnin eru á Viðeyjarstofu og Þerneyjarstofu. Við nefndum deildarnar eftir eyjunum hér úti á flóanum. Fjöldi starfsmanna fer eftir aldri barnanna hverju sinni.

Leikskólinn Bakki er staðsettur í miðri náttúruparadís. Fuglalífið er fjölskrúðugt og fjaran næstum því við lóðarmörkin. Það er kyrrlátt og helstu hljóðin sem heyrast eru fuglasöngur, hvinur í vindinum og hlátrarsköll barnanna. Útsýnið er fjöllin, hafið og Snæfellsjökullinn.

Út frá þessari staðsetningu og upplifun, leggjum við áherslu á að endurspegla kyrrðina og notalegheitin sem eru hér allt um kring. Við viljum hafa rólegt og heimilislegt andrúmsloft, þannig að öllum finnist gott að koma til okkar, hvort sem er í lengri eða skemmri tíma.

bakki

Leiðarljósin okkar á Bakka
Sjálfstæði - Virðing - Samvinna
 

Hvatningarverðlaun 2008

Hvatningarverðlaun 2009

Hvatningarverðlaun 2010

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Bakki | Bakkastaðir 77 | 112 Reykjavík | s: 557 9270 | Póstur | Viðburðir | Fréttir