| Foreldrafélag |
|
|
|
|
Foreldrafélag Bakka var stofnað þann 3. nóvember 2004. Meðlimir þess eru foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum Bakka. Tilgangur og markmið foreldrafélagsins er að stuðla að velferð barna á leikskólanum Bakka með því að:
Stjórn foreldrafélagsins er skipuð sjö félagsmönnum auk varamanna, a.m.k. einum fulltrúa frá hverri stofu ásamt einum fulltrúa leikskólans. Aðalfundur er haldinn í október ár hvert og er þá kosið í nýja stjórn og tækifærið notað til að ræða um störf félagsins. Stjórnin skipar sjálf í embætti sem eru formaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur. Stjórnarmenn eru kosnir árlega en minnst þrír fulltrúar eldri stjórnar skulu sitja annað tímabil. Stjórnarfundir eru haldnir hvenær sem þurfa þykir, að jafnaði mánaðarlega. Enginn er skikkaður í stjórn félagsins sem ekki vill taka þátt í starfinu, en okkar stutta reynsla er hins vegar sú að mikill og góður áhugi er hjá foreldrum að starfa fyrir félagið. Félagsgjalda er aflað með fjáröflun ýmiskonar og renna fjármunir í sjóð sem stendur straum af kostnaði við starfsemi félagsins. Félagið hefur staðið fyrir ýmsum uppákomum og málum og má sem dæmi nefna:
Stjórn foreldrafélagsins og foreldraráðs 2009-2010
|
| 13.09.'10 Umhverfisdagur |
| 23.09.'10 Þjóðleikhúsið 2005 árg. |
| 27.09.'10 Starfsdagur |
| 29.09.'10 Foredrafundur |