|
Við í leikskólanum Bakka bjóðum ykkur velkomin.
Hér er stór hópur af litlum vísindamönnum á aldrinum eins til sex ára. Helstu einkenni hópsins eru lífsgleði, forvitni og áhugi.
Við erum einnig með glæsilegan starfsmannahóp, sem heldur vel utanum allan leikskólann. Við erum mjög stolt af starfinu okkar, öllum leikskólanum og því umhverfi sem við erum í.
Við bjóðum ykkur sérstaklega velkomin sem eruð að koma til okkar í lengri tíma. Það er alltaf gaman að fá nýja einstaklinga í flóruna og auðga þannig reynslu okkar og vonandi ykkar líka.
Öllum er þó velkomið að heimsækja okkur, en þar sem við erum oft mjög upptekin, þá er best að hringja á undan sér (sími 557-9270) og tala við Ingibjörgu leikskólastjóra.
Fyrir áhugasama eru hér lokaskýrslur á þeim þróunarverkefnum sem við höfum unnið:
Fjörulallar, hér erum við!
Hér má sjá Hvatningarverðlaun sem við höfum fengið:
eTwinning
|