| Comenius |
|
|
|
|
Við hér á Bakka höfum verið í eTwinning sem er rafrænt samstarf á milli skóla í Evrópu. Í gegnum þá vinnu kynntumst við meðal annars kennara í Bretlandi sem vildi endilega fara í Comeniusarverkefni með okkur og fleiri löndum. Við slógum til og sóttum um styrk og fengum hann.
Verkefnið byggir á því að vinna með fuglana í umhverfi barnanna. Við lærum fuglasöngva á tungumálum samstarfslandanna og gerum ýmis spennandi verkefni sem hægt verður að fylgjast með hér á heimasíðunni.Löndin eru England og Spánn, fleiri lönd ætluðu að vera með en fengu ekki styrk og eru þ.a.l. ekki með. Hins vegar erum við svo heppin að Flataskóli í Garðabæ er einnig í þessu samstarfi og munum við vinna þó nokkuð saman.
Comenius er leið sem tengir saman skóla í Evrópu og snýst um samstarf sem á að efla gæðastarf í skólum og Evrópuvitund.
COMENIUSAR-þáttur Menntaáætlunar ESB er nefndur eftir tékkneska guðfræðingnum, heimspekingnum og uppeldisfrömuðinum Johann Amos Comenius (1592-1670). Hann var sannfærður um að með menntun gæti maðurinn nýtt hæfileika sína til fulls.
|
| 13.09.'10 Umhverfisdagur |
| 23.09.'10 Þjóðleikhúsið 2005 árg. |
| 27.09.'10 Starfsdagur |
| 29.09.'10 Foredrafundur |