| Umhverfisvernd |
|
|
|
Þannig að nú teljum við að séu kjöraðstæður til að fara af stað, þar sem áhugi barnanna er til staðar. Ingibjörg og Rakel fóru á námskeiðið Sjálfbær þróun hjá Náttúruskólanum í byrjun nóvember og sáu að þetta var spennandi verkefni sem smellpassar inn í starfið okkar. Þar með fór boltinn að rúlla, við sóttum um að gerast skóli á grænni grein og fengum það. Allir starfsmennirnir á Bakka eru búnir að fá fræðslu og næsta skref er að skrá niður stöðuna eins og hún er hjá okkur í dag og ákveða út frá henni næstu skref. Hugmyndin er að vera með sér takka hér á heimasíðunni, þannig að auðvelt sé að fylgjast með vinnu okkar, en einnig að fræðast og taka þátt. Vonandi náum við að kveikja áhuga hjá ykkur sem eru að fylgjast með okkur. Þann 24.júní 2009 fengum við að flagga grænfánanum. Þetta var glæsilegt, enda börnin mjög áhugasöm og virkilega tilbúin í þetta verkefni. Það er alfarið börnunum að þakka að við flöggum fánanum eftir svona skamman tíma (urðum skóli á grænni grein í nóvember 2008), þau eru svo áhugasöm og leiddu þetta verkefni. Það er okkar fullorðna fólksins að halda starfi barnanna gangandi og hlusta á þeirra sjónarmið í umhverfismálunum til að halda grænfánanum. Nokkrir gagnlegir vegir:
|
| 13.09.'10 Umhverfisdagur |
| 23.09.'10 Þjóðleikhúsið 2005 árg. |
| 27.09.'10 Starfsdagur |
| 29.09.'10 Foredrafundur |